Frisbígolftímar á sunnudögum

20. október 2022

Ungmennafélagið Reynir býður upp á frisbígolftíma einu sinni í viku. Gunnar Árni Jónsson sér um tímana og mun hann leiðbeina fólki eftir bestu getu. Tímarnir verða á Árskógsvelli á sunnudögum frá kl. 14:00 til 15:00 og eru þeir opnir öllum.

Þeir sem eiga diska eru hvattir til að taka þá með sér, annars á félagið nokkra diska sem verða til afnota.